Lilja Sif á ferð og flugi
21.09.2009 17:58:54 / liljasif

FH leikurinn

Hæ, hæ

Í gær var FH leikurinn mikli þegar FH keppti við Val og vann 2-0 og tryggðu sér þar með íslandsmeistaratitilinn. Ég fór með Stefáni og VÁ hvað það var gaman. Það var ömurlegt veður en rosalega gaman að sjá þá vinna. Fyrsta markið kom frekar snemma í leiknum og seinna markið rétt fyrir hálfleik. Þegar 30 min voru eftir að leiknum þá voru áhorfendur byrjaðir að fagna tiltlinum síðan þegar leikurinn var búinn þá voru allir öskrandi af kæti.

Biggi á líka afmæli í dag, vil óska honum til hamingju með daginn :D


Bless, bless

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2009 21:02:20 / liljasif

Svakalegur dagur!

Vá hvað þetta var góður dagur :D
Mér fannst ég bara fá góðar fréttir. Fékk að vita úrslitin úr prjónasamkeppninni, ég hlaut 1.verðlaun (www.tinna.is). Ég er ekki ennþá að trúa því þó það séu komnar 6 klst síðan ég fékk fréttirnar. Mig vantar að einhver klípi mig því ég er alveg á því að mig sé að dreyma.

Áður en ég fékk að vita úrslitin þá var þetta samt góður dagur. Það var brjálað að gera hjá mér en ég var einhvern veginn í góðu skapi allan tímann.

Ég heimsótti síðan ömmu eftir vinnu og hún var ekkert smá stolt af mér. Öll fjölskyldan mín er öll geggjað stolt af mér :D

Jæja, ætla að halda áfram að prjóna :p

Bless í bili :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

09.07.2009 10:54:50 / liljasif

Fleiri afmæli


Stefán er 25 ára í dag, til hamingju með afmælið Stefán!!!!

Hvernig er hægt að vera skítsama um afmælið sitt?

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2009 11:05:09 / liljasif

Ammæli!!!!

Ég vil bara óska bróður mínum tilhamingju með daginn :D Hann er þrítugur í dag. Til hamingju Hilmir.

Ég er síðan 23 ára í dag. Tíminn fljótur að líða. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera í dag. En í kvöld þá fer ég í afmæli bróður míns. Verst að sólin er að fela sig svona, var að vonast eftir sól og blíðu svona í morgunsárið :D

Ég ætla að fara að gera eitthvað af mér :D

Kveðja
Lilja Sif


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2009 15:46:32 / liljasif

Spurning dagsins.....

Hvað langar mig í afmælisgjöf. Maður á bara afmæli á morgun, tíminn fljótur að líða. Ég er sko EKKI að vinna á morgun. Um kvöldið er síma stórafmæli hjá stóra bróður.

Þarf að halda áfram að vinna

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2009 13:42:46 / liljasif

Spennandi fréttir

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ MAMMA!!!!!!

Vá ég fékk æðislegar fréttir í gær og er að fara að prjóna fleiri litlar flíkur fljótlegar. Ég veit ekki hvort ég megi nefna nein nöfn en það er lítið kríli að koma eftir nokkra mánuði. Ég er ekkert smá spennt og ætla að vera á fullu að prjóna fyrir litla krílið.

Já, mamma á afmæli og við systkinin erum ekkert að standa okkur. Við erum öll eitthvað að fara að gera eitthvað annað, útilegu, sumarbústað eða vinna. Ég ætla samt að reyna að fara í heimsókn til foreldranna í kvöld. Ég ætlaði að baka handa henni köku en eftir vinnu þá var ég alveg búin að gleyma því. Var alveg í sjokki og rosalega spennt yfir fréttunum um krílið að ég bara gleymdi öllu öðru. (Vil bara hafa það á hreint að ég er ekki að fara að eiga).

Það bara styttist bara í afmælisdaginn. Bróðir minn kemur líka heim frá USA á mánudaginn til að halda upp á afmælið sitt. Ég hef ekki oft þurft að deila afmælisdeginum mínum. Þegar ég var tvítug þá deildum við deginum. En hann má fá alla athyglina núna því þetta er stórafmæli hjá honum :). Mamma segir að ég hafi átt að koma í dag fyrir 23 árum þannig að þetta átti að vera afmælisdagurinn minn. En þjóðhátíðardagur USA hefur hljómað betur :p.

Vá, ég var að svara í símann rétt í þessu og ég stamaði bara, ég var alveg búin að gleyma hverju ég átti að svara, var alveg Tu...aaaaa...daaa...eeeee....nei....uuuuu. Síðan náði ég loksins að æla því rétt út úr mér og kallinn hló bara að mér. Skiljanlega :p
HAHAHAHAHA :D.
Ég ætti að halda áfram að vinna. Það er reyndar rosalega rólegt hjá okkur eins og er og maður er bara að prjóna í rólegheitunum og hlusta á tónlist.

Kveðja
Lilja Sif


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.06.2009 20:18:42 / liljasif

Vá hvað maður er ekki að standa sig hérna!!!!

Hæ, hæ allir saman

Ég skammast mín ekkert smá fyrir að vera svona léleg að blogga. Ég hef bara ekki haft neitt í fréttum fyrr en núna.

Ég hef verið að vinna mikið upp á síðkastið og prjóna inni á milli. Er að vinna að tveimur barnaflíkum núna, sætri peysu og kjól.
Ég er að fara í sumarfrí í lok júlí og get ekki beðið eftir afslöppun og flakki um landið. Ég á bráðum afmæli. Þar sem ég þarf að deila afmælinu með bróður mínum sem er að verða þrítugur þá veit ég ekki hvort ég haldi upp á það.

já, hvað fleira get ég sagt...

Kveðja
Lilja Sif



» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2008 18:56:47 / liljasif

Jólin í sveitinni nálgast

Ég og Stefán erum hérna í sveitinni. Við lögum afstað klukkan 8 um morguninn, það snjóaði mikið fyrir sunnan þannig að við keyrðum mjög hægt. Við vorum komin til Akureyrar um klukkan tvö. Við sóttum bræður hans Stefáns og fórum í heimsókn til ömmu þeirra og afa. Síðan skiluðum við bræðrum hans og keyrðum í sveitina.
Stefán fór beint í fjós og ég slappaði af á meðan. Þegar við vorum að fara að sofa þá ákvað Stefán að kíkja á eina beljuna sem var að fara að bera. Hann kom til að segja mér að hún væri að bera þannig að ég hljóp út og sá þegar Stefán tók á móti alveg hvítri kvígu. Hann setti hana fyrir framan mömmu sína sem sleikti hana alveg bak og fyrir.

Ég er bara búin að vera í náttfötum í allan dag, svaf alveg heillengi og hef ekki nennt neinu. Ætla að reyna að gera eitthvað jólalegt á morgun. Ekkert smá gott að vera kominn í smá frí.

-Jólakveðja úr sveitinni-
Lilja Sif

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2008 11:39:02 / liljasif

Fyrsti í aðventu

Um helgina er fyrsti í aðventu. Ég er komin í svo svakalegt jólastuuuuð. Ég fór niður í geymslu í gær og sótti jóladótið því ég ætla sko að skreyta. Ég þoli ekki gervitré en mig langar svo rosalega mikið til að fá eitt stk lánað hjá einhverjum þar sem ég get ekki verið með ekta tré þessi jól.
Við Stefán erum að líklega að fara norður 20. desember og vera þar um jólin. Ég er frekar stressuð því ég hef aldrei upplifað jól án fjölskyldunnar. Stefán er ekki eins spenntur og ég fyrir jólunum en hann þarf að hugsa um skólann. Það eru próf og ritgerðarskil að nálgast hjá honum. Hann hefur samt ekki verið mikið jólabarn.
Þetta á eftir að vera æðisleg helgi því margt skemmtilegt er að fara að gerast fyrsta í aðventu.
Ég er að fara að selja jólakort í Kringlunni eitthvað um helgina. Það verður stuuuð. Verð með vinnufélögunum og að styrkja gott málefni. Jólakortin eru annars til styrktar krabbameinssjúkum börnum (SKB). Ef ykkur langar til að kaupa þá kostar pakkinn 1000 kr og það eru tvær myndir í boði sem hægt er að sjá á þessarri slóð: http://www.skb.is/index.php?option=com_content&view=article&id=91&Itemid=147.

Eruð þið orðin spennt fyrir jólunum? Endilega commenta svar :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

27.09.2008 22:35:17 / liljasif

FHingar Íslandsmeistarar

Til hamingju FHingar!!!!!

Sem betru fer unnu þeir leikinn og náðu aftur Íslandsmeistaratitlinum.

Stefán er í sveitinni, hann kemur heim á morgun. Ég gat ekki farið með honum því ég þurfti að vinna, en við förum kannski næstu helgi, ekki alveg komið á hreint. Íbúðin hennar Katrínar er alveg að verða klár. Ég er búin að vera versta systir í heimi og EKKERT hjálpað til. Ég kíkti samt til hennar í gær og þá voru pabbi og Jónsi að vesenast í eldhúsinnréttingunni (sem er geggjað flott). Biggi og Rabbi voru að parketleggja og Katrín og Guðbjörg voru að vesenast aðallega með fatahengið.

Ég þarf kannski að kíkja niður í vinnu á morgun áður en ég fer að sækja Stefán. Við sjáum til. Þar sem ég gerði ekkert í dag (bara slappa af og skoða blog og svona, langt síðan ég hef gert það) þá ætla ég að vera dugleg á morgun og taka til og svona.

Heyrumst síðar. 

Kveðja
FHingur :D

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 08:15:47 / liljasif

Undanúrslit!!!

Til hamingju Íslendingar!

Við erum komin í undanúrslit eftir æsispennandi leik í morgun.

Ég vil bara afsaka bloggleysið.
Helsta í fréttum:

Litli blái fuglinn minn lést fyrir viku. Við erum öll búin að vera afar döpur heima og þá aðallega litli guli. Hann missti besta vin sinn. Afar sorglegt og leiðinlegt.

Ég er að fara í sumarfrí á mánudag og ætlum við Stefán að fara á föstudaginn með mömmu og pabba á Akureyri og slappa af.

Ég var að byrja í gær á lopapeysu. Ég er komin með tvær pantanir í lopapeysu og eina pöntun í viðbót í lopapela og eina pöntun í leyniverkefni með lopa. Ég verð ábyggilega komin með ógeð af lopa fljótlega. Búin að vera að prjóna lopa pela í sumar og selja þá.

Ég fer ekki í skóla þennan vetur en Stefán komst í stóriðjuskólann í Álverinu sem er spennandi. Ég ætla mér samt að fara næsta vetur í skóla.

Ég þarf að halda áfram að vinna.
Kveðja
Lilja Sif

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 16:22:02 / liljasif

Stefán gamall kall

Hann Stefán á afmæli í dag, hann er ekki svona eins og ég að gera stórmál úr því að eiga afmæli. En ég ætla samt að óska honum til hamingju með afmælið.

:D

Ekkert að frétta af mér annars. Ég er bara að vinna og sofa og prjóna á fullu. Kláraði í gær að prjóna lopapeysu utanum pela (ekki barnapela). Ég á bara eftir hattinn á pelann.
Ég hitti Dagný og skólasystur hennar í gær.

Jæja, ætla að halda áfram að vinna

Kveðja
Lilja Sif

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 08:54:11 / liljasif

Ég á AFMÆLI í dag!!!

Ég á afmæli, afmæli, afmæli, afmæli í DAG!!


Happy birthday to me.

Kaka  handa mér

Kaka  handa þér

Þið verðið að afsaka montið í mér en ÉG Á AFMÆLI í DAG!!


Náðiru þessu :p

Lilja Sif - afmælisbarn

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2008 12:20:43 / liljasif

Afmælið nálgast

Hæ, hæ

Ég er komin úr þessu stutta sumarfríi og aftur í vinnuna. Það eina sem ég hef að hlakka til núna er að ég á afmæli á föstudaginn. Ég ætla að vera með smá kökuboð og er einmitt að baka köku núna. Ég er fegin að hafa eitthvað til að hlakka til þar sem ég er orðin þreytt á vinnunni og mig langar að fara að gera eitthvað annað núna.

Þetta kökuboð á föstudaginn er ekkert svona sem þú færð boðskort í. Ég verð komin heim kl 17 og þér er velkomið að kíkja ef þú villt (nema ég þekki þig ekki). Það er bara heima hjá mér.

Jæja, kakan er tilbúin. Sjáumst

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.06.2008 19:50:54 / liljasif

Sumarfrí

Hæ, hæ

Míns er bara kominn í sumarfrí. Keyrði í sveitina í dag og var að koma. Ég er núna að dunda mér og njóta þess að vera í fríi á meðan Tóti (pabbi Stefáns) og Helga (kærasta Tóta) eru í fjósi og Stefán og einhver Villi (vinnumaðurinn) eru að heyja. Það var ekki erfitt að keyra hingað og tíminn miklu fljótari að líða þegar maður er undir stýri heldur en farþegi. Mér fannst ég vera í 3 klst að keyra en ég var nær 5 (þ.e.a.s. alla leið inn í sveit). Við komum við í bænum til að versla og sækja hluti).
Ég er orðin svo þreytt á vinnunni minni og er ekkert smá fegin að ég tók mér sumarfrí (hefði verið betra að vera i launuðu fríi samt). Ég ætla að njóta þess að vera laus við þetta Nethjálpar helvíti og hugsa um fagra hluti næstu daga.
Þegar við vorum ný komin (Helga var samferða úr bænum) í sveitina þá þurftum við að fara að sækja tvo kálfa út á tún. Þeir fæddust í morgun. Annar kálfurinn var hlaupandi á eftir mömmu sinni. Þeir eru svo sætir þessir kálfar. Ég fór aðeins inn í fjós að heilsa upp á alla hinu 20 kálfana þar. Þeir uru svo sætir þessir kálfsar. Í fjósinu eru nautin líka, þeir eru í "sumarfríi" ;) Annað nautið er svo RISA stórt og flott, hann er líka rosalega gæfur og forvitinn. Hitt stóra nautið er ekkert svo stórt en hann er í straffi (alltaf að fara yfir girðingar og valda veseni).
Jæja, hafið það gott. Ætla að halda áfram að prjóna.

Kveðja
Lilja Sif

p.s. Til hamingju með afmælið Jóhanna. Mér finnst hundleiðinlegt að missa af veislunni. Skemmtu þér sjúklega mikið á morgun :*

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 14657
Dagsetning
15. mars 2010
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 107 dögum
5 ár!
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 81 dögum
koma jólin :D
Talning
Eftir 111 daga
verð ég 24 ára
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 8655 dögum
fæddist ég!
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 1 október